Áburðarrit Fóðurblöndunnar er komið út og í því má finna áburðarverðskrá og vöruskrá fyrir árið 2021. Verðskráin sýnir verð pr. tonn (án vsk.) miðað við afgreiðslu í 600 kg sekkjum (Limus® Pro 500 kg).
Fimmtán áburðartegundir
Í vöruskránni má finna fimmtán áburðartegundir sem eru sérsniðnar að þörfum landbúnaðar á Íslandi og byggja á traustum rannsóknum á íslenskum jarðvegi og heysýnum frá íslenskum bændum. Sjö áburðartegundir innhalda selen og bætt hefur verið við enn meira kalki og magnesíum í fjórar áburðartegundir.
Urea Limus ®Pro – bylting á íslenskum markaði
Góð reynsla er komin á húðaðan Limus Pro Urea áburð. Sú tækni sem notuð er við þessa húðun er einstök og hefur virkað vel hér á landi. Ljóst er að hvert áburðarkorn þarf að nýta vel. Hátt gildi köfnunarefnis í þessum áburði dreifist á mun stærra svæði og við það verður töluverður sparnaður. Það er mat viðskiptavina, sem notað hafa þennan áburð, að virknin skilar sér vel í gróffóðrið.
Niðurstöður heyefnagreininga 2020
Í áburðarritinu má sjá niðustöður úr tæplega 1.700 heysýnum, sem voru tekin síðasta haust.
Heyfengurinn í ár: ·
- Meltanleiki er góður, þó lægri en í fyrra.
- Hráprótein er breytilegt, en nokkuð gott í heildina.
- Nóg er af tréni, meira en fyrri ár.
- Steinefnin mælast hærri en árið 2019. Hærra Ca, P, Mg og K á öllu landinu.
- Lægra sykurinnihald.
Ítarlegri niðurstöður má sjá í Græði áburðarriti hér að neðan, ásamt verðskrá.
Vöru- og verðskrá 2021
Áburðarpöntunarblað 2021
sölumenn og afgreiðslustaðir áburðar